Valla J
27.02.2008 21:41:40 / vallaj

Alveg að koma mars.


mér finnst fínt að mars sé alveg að koma, þó veður geti verið leiðinlegt en þá er bjartara úti og það líkar mér vel.Ég kann betur við dagsbirtuna og vorið er minn uppáhalds tími.Þá er allt að lifna við og og þá eru dagarnir langir og þá tími ég ekki að sofa mikið og þarf þess heldur ekki.Ég Baldvin og Sunna fórum norður um síðustu helgi og það var mjög gaman. Yndislegt að hitta fjölskylduna og aðalega litlu dúllurnar mínar:d Á laugardagskvöldið fórum ég og Inga í leikhús og sáum fló á skinni sem var mjög skemmtilegur farsi.Mikið hlegið og gaman að geta boðið Ingu minni upp á smá upplyftingu. Svo hittist það svo skemmtilega á að við lentum við hliðina á Laufey frænku Ingu og Rúnari.Rúnar var að sjálfsögðu með pelann í vasanum og ég naut góðs af því;) Eins voru afi og amma Ingu þarna líka á næsta bekk. Baldvin hjálpaði Einari í húsinu  á laugardaginn og afarnir hans báðir líka. Þær dafna aldeilis vel ömmustelpurnar mínar og nóg að gera hjá Ingu minni og Einari bæði í barnauppeldi og húsbreytingum ! Get ekki beðið :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 08:48:56 / vallaj

Vetur.

Jæja nú er vetur. Eru ekki allir að tala um veðrið? Mér finnst það nú ekkert skrítið þó fólk tali um veðrið ég hugsa mikið um veðrið og fylgist með því , veit vel að ég get ekki breytt neinu í því sambandi ,en það skiptir mig máli og betra að vita á hverju maður á von. Annars finnst mér allt í lagi að hafa vetrarveður snjó og kulda.Mér finnst rigningin ekki góð og ekki rokið! Það á að vera snjór og frost á vetrunar og sól og hiti á sumrin er þetta nokkur frekt:) Annars er allt gott að frétta af mér hress og kát á fullu í ræktinni, amma gamla verður að reyna að vera í formi;) Baldvin og Sunna eru hjá mér núna flutt til mín og er það frábært , leiðinlegt að vera alltaf ein heima!Svo er gaman að fara að elda aftur nenni ekki að elda handa mér einni. Nóg að gera í vinnunni er að vinna um helgina og var að vinna síðustu helgi mikið fjör! Ég stefni á að fara norður síðar í mánuðinum til að hitta litlu dúllurnar mínar Jóhönnu og Valgerði. Eins ætla ég að fara í leikhús á fló á skinni vona að veðrið verði til friðs því ég ætla að keyra og vonandi komast Baldvin og Sunna með mér. Vona að allir hafi það gott sem lesa þetta og góða helgi , best að gera sig klára í vinnu.

Kveðja Valla.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 17:39:06 / vallaj

Nýtt ömmubarn

Hæ allir :) Já nú á ég nýja ömmustelpu, sem fæddist í gærmorgun,stór og falleg stúlka, sem ég er reyndar ekki búin að sjá ennþá nema á mynd. En ég sé hana um helgina. Á morgun flýg ég norður og verð þar alla næstu viku í ömmuleik. Ekki leiðinlegt:) Annars er ég lasin eina ferðina enn búin að vera í rúminu síðan á máundaginn með slæma flensu.Fór til læknis í morgun og fékk tvennskonar púst og pencilín svo nú fer ég að hressast ,fékk barkabólgu út þessu öllu saman.Ég er nýbúinn að vera lasin er ekki alveg að fíla þetta ég sem er yfirleitt mjög hraust.Þoli kannski ekki að vera orðin amma;) En í alvöru ég ríf mig upp úr þessu með hækkandi sól og verð í góðu formi mjög fljótt eins og ég er vön. Hlakka mikið til að hitta dóttur mína og hennar dætur þær eru allar hressar.Verð með Jóhönnu sennilega hjá mér í næstu viku hún sefur hjá mér og ég ætla að dekra við hana og eins ætla ég líka að dekra aðeins við Ingu mína.Reyni einnig að heimsækja ættingja og vini.Passið ykkur á flesunni.
Kærar kveðjur í bili.

Valla.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 16:53:28 / vallaj

Gleðilegt nýtt ár.

Já komið nýtt ár og bara stutt í páskana:) Vona að allir hafi það gott eftir jólin og séu tilbúnir í nýtt og spennandi ár.Það er ég allavega búin að jafna mig eftir pest um jólin, ég fitnaði ekki þessi jól ,lagði af en missti af öllum kræsingunum hjá mömmu og pabba:( hafði bara enga list og þá er ég frekar slöpp þegar ég get ekki borðað, ég matargatið sjálft. En nú er ég komin með lystina og byrjuð í ræktinni á fullu. Svo er ég líka flutt og búin að koma mér fyrir. Alveg meiriháttar, fékk góða og mikla hjálp hjá vinum og fjölskyldu:) Nú býð ég bara eftir ömmubarni númer tvö, ætla að fara norður um leið og það kemur, ætla að hjálpa Ingu.Læt þetta nægja af mér núna.

Kveðjur til allra.Valla.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 13:40:48 / vallaj

Gleðileg jól!

Hæ allir vinir og fjölskylda sem lesa þetta. Sit hér heima og býð eftir flugi norður í jólin:) Hlakka mikið til að komast í faðm fjölskyldunnar, og að hvíla mig aðeins eftir mikla törn í desember. Eina sem skyggir á þessa ferð norður að sonur minn kemur ekki með:( en ég kem aftir heim á annan í jólum og ég veit að hann er í góðum höndum hjá foreldrum Sunnu. Fór og heimsótti þau aðeins í gær loksins, vildi nú hitta þau aðeins, hann er svo mikið hjá þeim og fannst mjög óþægilegt að hafa ekki hitt þau.Yndislegt fólk og frábær staður sem þau búa á í  Elliðaárdalnum.Svo er ,þessi sonur minn orðin fullorðinn verð víst að fara að átta mig á því:). Af flutningum er það að frétta að eitt kvöldið í síðustu viku þegar ekki ringdi eldi og brennisteini þá fórum ég Sunna og Baddi með allt úr eldhúsinu í nýju íbúðina nema ískápinn og örbylgju ofninn gott að vera búin með eitthvað,annars lítill tími búin að vera til að fara með eitthvað og líka alltaf rok og rigning.En á þriðja í jólum er stefnt á að flytja alla stóru hlutina er búin að smala eitthvað af liði og stórum bíl líka.Það á nefnilega að byrja að parketleggja hér í Jóruselinu á föstudagsmorgun. Ætla að skila henni af mér sem fyrst.Annars er ég lasin í dag og var lasinn í vinnunni í gær ,gat platað minn yndislega son til að koma í gær og hjálpa mér að keyra út vörur var alveg búin á því og er svo þrjósk að ég vildi klára mína vinnu. Baldvin var svo aðeins að snúast með mér í morgun, gömlu slöppu konunni! Vil segja við alla sem ég þekki að ég er ekki búin að skrifa á nein jólakort ennþá og veit ekki hvort nokkur fær núna í ár, aldrei skeð áður en vona að allir fyrirgefi það:o Segi GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR ! Vona að ég hitti sem flesta yfir jól og áramót svo ég geti knúsað alla.

Kær kveðja  til allra og hafið það gott þangað til ég hitti ykkur.

Valla


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 22:14:04 / vallaj

Aðventan.

Halló! þá er aðventan byrjuð, það er bara yndislegt. Búin að setja aðventuljósið út í glugga, meira skreyti ég ekki út af flutningum.En það er líka allt í lagi kveiki bara á fullt af kertum. Ég ætla að vera fyrir norðan á aðfangdag og jóladag reikna með að fara suður aftur á annan í jólum.Svo ætla ég að taka mér viku frí í janúar byrjun til að aðstoða dóttur mínameð dætur sínar  ef hún verður þá ekki komin þessi litla dama fyrir áramót ,sem ég á alveg eins von á. Ég er búin að baka laufabrauð með vinkonum mínum það var voða gaman . Reikna nú ekki með að ég baki mikið jú brúnu augun verð ég að baka við Baldvin elskum þær.Eins baka ég slúttur mið Selmu og Haddý sem er álíka vinna og að baka Sörur.Næsta laugardag ætla ég á jólatónleika með Bjögga  ég hlakka mikið til saumaklúbburinn ætlar að fara . Vona að allir njóti aðventunar og fari ekki yfir um í jólastússi það ætla ég ekki að gera verð að vinna mikið næstu helgar þannig að stússið verður ekki mikið:)

Njótið lífsins!

Kveðja Valla.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 11:56:21 / vallaj

Flutningar

Jæja skrifa núna fljótt aftur.Ætla að skrifa aðeins hérna áður en ég gerist dugleg og fer að laga til í skápum og hillum og henda, er nefnilega að fara að flytja eina ferðina enn;) svo gaman að flytja að ég verð að gera það reglulega, safna líka minna drasli á meðan:)Ég ætla sem sagt að flytja milli jóla og nýárs í stærri íbúð hérna rétt hjá, í Fjarðarsel sem er næsta gata við Fljótasel sem við bjuggum einu sinni. Baldvin fær stærra herbergi og við fáum garð og þvottahús sem verður æði erum orðin pirruð á að vera hér, svo er fjölskyldan hennar Ingu að verða svo stór að ég verð að geta tekið á móti henni;) Inga og fjölskylda hennar ætlar að kom suður á næsta fimmtudag og gista hjá mér og reyndar á föstudagsnóttina verður Jóhanna Margrét ein hjá ömmu sinni hlakka mikið til enda erum við svo góðar vinkonur búnar að hittsat núna nokkru sinnum með stuttu milli bili.Ég ætla að sjóða slátur í kvöld sem ég fékk hjá Möggu systir handa okkur Badda, fékk hjá Halldóru systur um daginn rosalega gott.Fínt að eiga svona duglegar systur.Jæja draslið býður ætla að nota þessa daga vel sem ég hef tíma áður en næsta vinnulota skellur á . Eigið góða vinnuviku allir saman.

Kveðja Valla.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 18:14:23 / vallaj

Englandsferð

Halló allir:)

Jæja langt síðan ég bloggaði síðast. Vegn mikilla anna hef ég ekki gefið mér tíma.London ferðin afstaðin fór þangað síðasta mánudagsmorgun til að taka þátt í Kanebo keppni á vegum Kanebo Semi - Final tournament .Keppni var á þriðjudeginum og gistu keppendur á fallegu spa hóteli í London á mjög fallegum stað eiginlega útí sveit með frábæru útsýni yfir Tames ána.Við keppendur vorum 21 víðsvegar að.Mér gekk ágætlega en komst ekki í 6 efstu sætin sem þýða að ég er ekki að fara til Japan í febrúar en tek þetta bara næst.þetta var dálítið stressandi en góð reynsla og rosalega gaman að hitta og kynnast öllum keppendum og fólkinu frá Kanebo í Japan sem voru þarna sem dómarar.Hópurinn náði vel saman þessa þrjá daga sem við vorum þarna.Ég er með harðsperrur í andlitinu búin að vera með fast bros alla þessa daga:) Ég var mest með stelpum frá Finnlandi og rússlandi. Gat aðeins verslað á fimmtudaginn í London keypti mest á Jóhönnu nennti nú ekki að versla mikið var með ferðatöskuna í eftirdragi allan tíma því það var svo langt í hótelið og flugvöllinn frá miðbænum.Frekar leiðinlegt að draga hana á eftir sér í undergrondið í London:)

Jæja læt þetta duga í bili skrifa fljótt aftur.kveðja til allra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 22:33:37 / vallaj

Sumri hallar.

Halló allir.

Jæja þá fer að styttast í sumarlok og haustið að koma, það er fallegur tími litadýrðin í nátturinni verður svo falleg. Nú verður maður líka að fara í berjamó ,fór til Selmu vinkonu áðan í bláber ,skyr og rjóma, umm svo gott. Ég fór noður á fiskidaginn mikla og mikið var það nú gaman,hitti fullt af ættingjum og vinum, gisti í fellihýsi með Ingu og fjölskyldu á lóðinni hjá Möggu Láru, það var fullt  bæði inni og úti á lóð hjá Möggu og Halldóru systir. Alltaf að fjölga ættingjum mínum sem mæta alveg frábært. Svo fór ég og hitti Guðjón og Fanney og skoðaði nýja húsbílinn þeirra og þar hitti ég líka Laufey og Rúnar og Einar og Guðrúnu frá Flateyri, Pétur og fjölskyldu hitti ég fyrr um daginn. Þetta var frábær helgi Mæja systir pabba og tvö börn hennar og fjölskyldur komu og að sjálfsögðu foreldrar mínir og börnin mín. Um helgina eða réttara sagt á laugardaginn var Haddý að gifta sig alveg yndislega skemmtilegt og fallegt brúðkaup og veislan frábær, haldin niðrí bæ á menningar nótt í yndislegu veðri. Dansaði svo mikið á nýjum hæla skóm að ég gat varla labbað í gær;) En mikið var gaman og Haddý var svo falleg ! Haustið er mikill annatími í vinnunni já og eiginlega fram að jólum mikið fjör framundan , það verður bara mjög gaman,vil hafa dálítið aksjón í kringum mig , búin að hafa það mjög rólegt og gott í sumar.:lol:Á von á Ingu dóttur minni suður núna í september og þá ætla ég að hafa Jóhönnu hjá mér og ætla að leyfa Ingu að hitta vinkonur sínar get ekki beðið eftir því að fá þær í heimsókn.Fer líka norður um miðjan Sept held ég að vinna aðeins og þá get ég knúsað þær.

Vona að allir njóti tímans framundan og allír í berjamó! Og gera sutu og gefa mér að smakka:)

Kveðja að sinni!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 19:56:09 / vallaj

Hei!

Hei allir :lol:

Jæja komin heim frá Helsinki, kom í dag úr frábæru veðri sól og hita. Það gekk vel í keppninni sem ég fór í, hún var í gær og þetta var forkeppni í Finnlandi sem haldin er til að velja þáttakanda sem fer til London í aðalkeppnina í nóvember.Ég var gestur í keppninni þar sem ég fer til London, engin svona keppni haldin hér á Íslandi.Mér var boðið svo ég fengi smá nasa sjón af hverning þetta fer fram.Það var mjög gott að fá tækifæri til að fara og taka þátt, var pínu tressuð;) en það er bara fínt, æfði mig mikið frá því ég kom heim frá Englandi, og það skilaði sér ágætlega ég var ekki síðri en hinar frá Finnlanndi. Ég var búin snemma í gær í keppninni þannig að ég gat skoðað mig um í Helsinki .Fór í siglingu með konu frá Kanebo í Sviss sem kom til að dæma okkur.Vorum einn og hálfan tíma í siglingu og skoðuðum borgina og eyjarnar í frábæru veðri  mjög gaman og fórum svo að borða á stað sem býður upp á Finnskan stað með gömlu Finnsku dóti.Mjög skemmtilegur staður  og gaman að koma þangað.Góður endir á stressandi en skemmtilegum degi! Í morgun gat ég svo labbað um miðbæinn og skoða mig meira um borgina, mjög gaman að labba um músik á öðru hverju horni hvort sem er að kvöldi eða morgni.Mæli með Helsinki fullt hægt að skoða og gera. Takk fyrir kveðjuna Lára langar líka til að hitta ykkur ,verð að fara að heimsækja Danmörk hef aldrei komið þangað. Bið að heilsa allri fjölskyldunni  Lára mín. Hlakka mikið til að fara norður um helgina og hitta alla í fjölskyldunni. Skal reyna að tala íslensku Magga mín:lol:

Bestu kveðjur að sinni!

Valla.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 18:37:11 / vallaj

Byrjuð að vinna.

Jæja þá er fjörið byrjað aftur farin að vinna.Byrjuð í ræktinni aftur gott að taka sér ekki of langa pásu :lol: En fríið var yndislegt og Englandsferðin mjög góð og lærdómsrík.Mæli með þessu.Hafði mjög gott af því að fara ein, hitti engan íslending sem var bara allt í lagi;) talaði ekki íslensku á meðan. Bara gaman að vera eins og skólakrakki í þrjár vikur, bara að chilla eins og unga fólkið segir. En nú er alvaran byrjuð aftur sem er bara allt í lagi, til í slaginn! Fer til Finnlands 6 ágúst í smá vinnuferð kem heim aftur 8ágúst.Gaman að fá að skreppa til Finnlands. Vona að allir hafi það gott og njóti sumarsins eða því sem eftir er ,stefni á Dalvík á fiskidaga til að hitta fjölskylduna mína alla og knúsa Jóhönnu litlu sem ég er aðeins búin að passa og knúsa í sumarfríinu mín.Vona að ég hitti sem flesta þar.

Sumarakveðja til allra sem lesa þetta.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:19:04 / vallaj

Nokkrir dagar eftir.

Halló:lol:

Jæja nú fer að styttast í heimför,þetta er aldeilis búið að líða hratt, búin að læra helling.Veðrið gæti verið betra, núna þegar ég skrifa þetta er rigning og hagél þrumur og eldingar.Svo styttir upp og sólin kemur í smátíma.Nenni ekki út að hjóla í þessu veðri.Var að enda við að læra og ætla bara að lesa og æfa mig. Konan sem í bý hjá er mjög dugleg að tala við mig og fræða mig um England, segja mér frá fallegum stöðum og var að lána mér bók með fullt af myndum og fróðleik.Einskonar vegahandbók eins og við þekkjum hana.Aðeins stærri og þykkari. Hún er líka alltaf að spyrja mig um Ísland, var hissa hvað við erum fá.Ég var að segja henni frá heimasíðu um landið sem hún getur skoðað.Hún er nýbúin að fá sér tölvu og er á tölvunámskeiði.Nýi skólinn sem við erum í núna er ágætur en maturinn er hræðilegur ,ég keypti mér nesti í gærkveldi til að taka með mér í morgun í skólann.Ég hlakka mikið til að fá mat á Íslandi. Á morgun er stuttur dagur í skólanum aðeins til eitt. Þá ætla ég að fara ásamt stelpj frá suður Kóreu og vinkonu minni frá Mallorca og einhverri einni enn, á Japanskan stað sem er víst mjög góður og fá okkur lunch.Ég var að kaupa mér miða með rútunni á flugvöllinn í dag þarf að fara snemma af stað því það er hægt að reikna með seinkunn á flugvellinum út af þessu sprengi veseni í London og Glasgow. Það er mjög há öryggisgæsla allstaðar núna og mjög mikið á flugvöllum.Ekki talað um annað þessa daga.

Vona að veðrið verði ennþá gott þegar ég kem heim,annars er mikið hlýrra þessa viku en síðustu viku,en alltaf einhver rigning á hverjum degi.

Knús til allra sjáumst bráðum:lol:

Valla


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 20:00:30 / vallaj

Vika tvö

Hello:)

Þá er vika tvö langt komin, hér er búið að vera kalt þessa viku,og einhver rigning á hverjum degi en erum samt búin að vera heppinn hér á þessu svæði miðað við Yorkshire, þar er allt á floti og mikið búið að rigna.það gengur ágætlega í skólanum góðir kennarar og passlega stór skóli og eins eru bekkirnir ekki fjölmennir 10-15.Í næstu viku þurfum við að flytja okkur í annan skóla svona 10 mín. frá Studio shool, hann er sagður nýrri og aðstaðan öll betri.Á afmælisdeginum mínum fórum ég og skólasystir mín Ailizia á sveitakrá hér  rétt hjá mér og fengum okkur að borða, mjög cosy.Í gær eftir skóla fóurm við um 30 manns að ánni og fórum í Punting en það eru bátar svipaðir og í Feneyjum og þeim er ýtt áfram með svona langri stöng.Við vorum 6 í bát og einn þurfti að ýta með stönginni, frekar erfitt.Þetta var mjög gaman og fallegt að skoða byggingarnar  og allt í kringum  ánna.þetta tók um tvo tíma og fór að hellirigna þegar við vorum að enda ferðina.Í gærkveldi fór ég á kínverskan veitingastað að borða með hóp af skólafélögum mínum,við vorum rúmlega 20 og einn kennari.Það var mjög gaman og ég kynntist og talaði við fullt af nýju fólki.Kennarinn sem fór með okkur átti þessa frábæru   hugmynd að fara og þetta var bara látið berast í skólanum,hristi hópinn betur saman .Í dag var aðeins hlýrra og sólin lét sjá sig,8) fór aðeins niður í miðbæ eftir skóla til að kaupa mér ávexti á markaðnum. Í kvöld er ég að læra undir próf sem verður í fyrramálið og svo er helgarfríið framundan, ekki ákveðin hvað ég geri um helgina.

Nóg í bili kveðjur til allra :lol:

Valla.8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 18:44:59 / vallaj

Helgarfrí:)

Stutt færsla núna! Ég og skólasystir mín frá Mallorca eyddum deginum saman. Hittumst í hádeginu eftir að rigningunni slotaði og eldingarnar hættu, gekk fljótt yfir. Byrjuðum á Mac Donalds og löbbuðum svo í lítinn verslunarkjarna hér rétt hjá okkur.Tókum svo Bus niður í miðbæinn og þar var mikið fjör lifandi músik á hverju horni og fullt af fólki og gott veður. Enda tók tíma að komast heim aftur:) Það eru margir skólar að enda núna og ég er búin að heyra í flugeldum á hverju kvöldi núna voða partý í gangi.Vona að allir hafi það gott í góða veðrinu á Íslandi. Já á morgun kemur hingað annar nætur gestur til hjónanna.Kennari í skólanum sem ég er í, verður hér í viku.Veit ekki hvaðan hann kemur en hann er ungur 25 ára.þannig að það er að fjölga á heimilinu.

Kær kveðja,

Valla.


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 19:25:28 / vallaj

Bréf frá Cambrigde :)

 Sæl og blessuð öll saman, og takk fyrir að kommenta á síðuna.:o

Ég hef það mjög fínt nóg að gera í skólanum þarf að læra heima á kvöldin sem er bara allt í lagi. Það er borðað snemma á þessu heimili hérna milli 5.30 og 6 þannig að ég reyni að vera komin heim fyrir þann tíma. Eftir matinn fæ ég mér svo smá hjóltúr áður en ég fer að læra.Amma gamla  fer nú frekar snemma að sofa á kvöldinn.Það er stutt fyrir mig að hjóla niður að ánni þar sem fólk er á fullu að æfa sig í kappróðri mjög gaman að fylgjast með því.Ég hjóla í gegnum kúahóp á hverjum degi á leið í og úr skóla.Í gærkveldi fann ég tvær ekta sveitakrár hér rétt hjá, í litlum bæ hérna rétt við hliðina sem ég verð að skoða betur um helgina:)Annars er Cambridge mjög þægileg borg ,það sem ég hef skoðað, hér er allt morandi í skólum og hér er mikið af ungu fólki út um allt af öllu þjóðerni.Í skólanum mínum er ég lang elst fyrir utan einn eða tvo.Þetta er meira og minna ungt fólk frá 16 ára til 25 ára.Mikið að krökkum frá Suður Kóreu , mjög margir frá Ítalíu , Spáni Sviss,Frakklandi og Svíþjóð og svo frá Arabalöndum auðviðtað!Enginn frá Íslandi og allir voða hissa , en allir ,svona nokkurn veginn , vita um Ísland . Mjög gaman hvað allir eru spenntir fyrir Íslandi.Eins þykir mér gaman að láta fólk segja nafnið mitt það finnst öllum erfitt, dettur ekki í hug að láta fólk segja Valla bara Valgerður.:)Ég þarf endalaust að vera að skrifa það niður:) Kennaranir eru mjög góðir, en þetta er smá erfitt en það er allt í lagi.Held að ég hafi staðið mig of vel í prófinu sem ég tók, held ég gæti verið á of háu bekkjarstigi. En prófa þetta áfram, þetta kemur í ljós.Fór áðan eftir skóla í bæinn með stelpu sem býr hér rétt hjá mér, stelpa frá Mallorca sem er tvítug og er frekar einmana hún og önnur sem er frá Ítlalíu og er 18 ára eru þær sem ég tala mest við eins og er.Annars talar maður svo mikið við alla hér, bæði í tímum og í hádeginu. Kennararnir eru duglegir að láta mann tala.

Nóg í bili :lol: Haið það gott allir sem lesa þetta.

Kveðja unglingurinn í Cambrigde8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill